Hvernig á að bæta við nýjum sjúklingi
Til að stofna nýjan sjúkling í kerfinu skal fylgja þessum skrefum:
- Smelltu á hnappinn + Add new patient (bæta við n. sjúk.).
Ath: Hnappurinn er aðgengilegur á flipunum Dashboard (mælaborð), Patients (sjúklingar) og Surgeons (skurðlæknar).

- Færið inn upplýsingar um sjúklinginn.
Meðal gagnareita eru:
- Patient Identification (auðkenni sjúklings) (tekur við öllum bókstöfum og tölustöfum en má ekki fara yfir 15 stafi)
- Patient’s First and Last Name (fornafn og eftirnafn sjúklings) (valkvæðir reitir)
- Patient Status (staða sjúklings) (virkur og/eða í forgangi)
- Date of Birth (fæðingardagur)
- Gender (kyn)
- Surgeon (skurðlæknir)
- Notes (optional) (Aths. (valkvætt))
Mikilvæg athugasemd: Sjálfgefinn skurðlæknir hefur hugsanlega þegar verið valinn ef aðgangurinn þinn er skráður inn sem skurðlæknir. Þú getur breytt þessu vali með því að smella á reitinn Surgeon (skurðlæknir). Ef enginn skurðlæknir er valinn er ekki hægt að slá inn foraðgerðargögn.
Önnur athugasemd: Ef þú vilt ekki hafa fornafn og eftirnafn sjúklings sem tiltækan reit þegar þú bætir sjúklingi við kerfið getur þú haft samband við þjónustudeildina með því að senda tölvupóst á customerservice.ag@staar.com og óskað eftir að þessir reitir verði fjarlægðir af þínum reikningi.

- Smelltu á Save (vista) til að ljúka við að stofna sjúklinginn.

Nýja sjúklingnum verður bætt við kerfið. Til að skoða alla núverandi sjúklinga skaltu smella á flipann Patients (sjúklingar) til að skoða alla virkni sjúklinga.
Hvernig á að breyta upplýsingum um sjúkling
Ef þú þarft að gera breytingar á upplýsingum um núverandi sjúkling skaltu fylgja skrefunum hér að neðan:
Á síðunni Patient Details (upplýsingar um sjúkling)::
- Smelltu á hnappinn Edit (breyta) í hlutanum PERSONAL (PERSÓNULEGAR UPPLÝSINGAR).
- Breyttu upplýsingum um viðkomandi eftir þörfum.
- Smelltu á hnappinn Save (vista) til að vista breytingarnar.
Ath: Smelltu á hnappinn Cancel (hætta við) ef þú vilt hætta við aðgerðina
