Hvernig á að taka frá linsuígræði
Eftir að þú hefur valið og vistað linsuígræði af réttri gerð á skjánum fyrir val á linsuígræði færðu aðgang að Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá) og getur valið linsuígræði til að Reserve (taka frá), Add to Cart (bæta í körfu) eða Manufacture (framleiða). Ef þú ert ekki tilbúin(n) til að panta linsuígræði til kaups getur þú tekið frá linsuígræði:
- Smelltu á hnappinn Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá). Þú getur skoðað niðurstöður úr leit í birgðum fyrir hvort augað sem er, eitt auga í senn (ef við á).

- Staðfestu eða veldu aðra lengd fyrir linsuígræði. Til að breyta lengd valins linsuígræðis skaltu smella á hnappinn fyrir fellivalmyndina Select Different Length (velja mismunandi lengdir) og velja þá lengd sem óskað er.
Ath: Ráðlögð lengd samkvæmt notkunarleiðbeiningum fyrir valda linsuígræðið er valin sjálfkrafa en þú getur breytt því vali. Ef önnur lengd er valin fyrir valda linsuígræðið birtist nýtt sett ígræða með nýju útreiknuðu styrktargildunum og upplýsingum um árangurinn sem vænta má af aðgerðinni.

- Veldu Quantity (fjöldi).

Vinsamlegast athugið að tiltækt magn er breytilegt eftir stillingum viðskiptavina og fjölda linsuígræða með sömu linsuforskriftum sem eru tiltækar á lager.
- Smelltu á hnappinn Reserve (taka frá) hjá linsuígræðinu sem þú vilt.

- Þegar þú hefur valið öll linsuígræði sem þú vilt skaltu smella á hnappinn Done (lokið).

- Fylgdu sömu leiðbeiningum við frátekt á linsuígræði fyrir hitt augað.
Með því að smella á Done (lokið) er frátektin staðfest og útreikningi læst fyrir það aðgerðarauga.

Þegar útreikningi hefur verið læst er ekki hægt að gera frekari breytingar á útreikningi linsuígræðisins. Þú færð staðfestingu í tölvupósti um frátektina. Linsuígræðið verður áfram tekið frá í tiltekinn tíma, allt eftir gildandi samkomulagi á þínu svæði. Þú færð einnig áminningar í tölvupósti á meðan linsuígræðið er frátekið.
Ath: Þrátt fyrir að útreikningurinn sé læstur geturðu samt skoðað skjáinn Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá) með því að smella á hnappinn View Inventory (sjá birgðaskrá).
Nánari upplýsingar fyrir skurðlækna sem panta gegnum dreifingaraðila og vilja forpanta linsuígræði er að finna í Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila: Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila: Hvernig á að forpanta.
Hvernig á að skoða gildistíma frátekta
Linsa sem er tekin frá verður tekin frá í tiltekinn tíma, allt eftir gildandi samkomulagi á þínu svæði. Skoðaðu síðuna Reservation Details (upplýsingar um frátektir) til að sjá nákvæma fyrningardagsetningu frátektarinnar.
Hægt er að opna síðuna Reservation Details (upplýs. um frátekt) með því að smella á númer frátektar, sem finna má á nokkrum stöðum:
- Dashboard (mælaborð) flipi undir Reservation notifications (Frátektartilkynningar
- Patients (sjúklingar) flipi undir Status (staða)
- Patient Details (upplýsingar um sjúkling) síða undir LENS / SURGERY INFO (UPPL. UM LINSU/SKURÐ.) eða RESERVATIONS (FRÁTEKIÐ)
- Reservations (frátekið) flipi
Ef frátekna linsan er ekki pöntuð fyrir fyrningardagsetningu verður frátektin sjálfkrafa afturkölluð og linsan færð aftur í birgðir.

Hvernig á að bæta fráteknum linsuígræðum við í innkaupakörfuna
Þegar þú vilt taka frá linsuígræði fyrir pöntun getur þú bætt fráteknum linsuígræðum í körfuna á flipanum frátektir eða á síðunni Reservation Details (upplýs. um frátekt).
Bættu frátekna linsuígræðinu þínu í körfuna undir flipanum Reservations (frátekið)
- Finndu réttu frátektina á Reservations List (frátektalisti). Þú getur notað leitarreitinn og síuhnappinn til að auðvelda leitina.

- Undir Actions (aðgerðir) skaltu smella á hnappinn Add to Cart (bæta í körfu) (blá mynd af innkaupakörfu).
Þú getur einnig valið mörg linsuígræði til að bæta í einu lagi í körfuna með því að nota verkfærið Select (velja).

Fráteknu linsuígræðin sem þú bætir við í körfuna fara sjálfkrafa í hana. Nánari upplýsingar um hvernig á að opna innkaupakörfuna er að finna í Hvernig á að opna innkaupakörfuna. Nánari upplýsingar um hvernig á að ljúka kaupum er að finna í Hvernig á að ljúka kaupum á linsuígræðum.
Bættu frátekna linsuígræðinu þínu í körfuna á síðunni Reservations Details (upplýs. um frátekt)
- Staðfestu að linsan sem skráð er sé rétta linsan í frátektinni sem þú vilt bæta í körfuna.

- Smelltu á hnappinn Add to Cart (bæta í körfu).

Frátekna linsuígræðið sem þú bætir við í körfuna fer sjálfkrafa í hana. Nánari upplýsingar um hvernig á að opna innkaupakörfuna er að finna í Hvernig á að opna innkaupakörfuna. Nánari upplýsingar um hvernig á að ljúka kaupum er að finna í Hvernig á að ljúka kaupum á linsuígræðum.
Hvernig á að hætta við frátekt á linsuígræði
Ef þú hefur ekki lengur áhuga á að panta eða forpanta, *ef við á, frátekið linsuígræði getur þú hætt við frátektina á linsuígræði á flipanum Reservations (frátekið) eða á síðunni Reservation Details (upplýs. um frátekt).
Hætta við frátekt á linsuígræði á flipanum Reservations (frátekið)
- Finndu réttu frátektina á Reservations List (frátektalisti). Þú getur notað leitarreitinn og síuhnappinn til að auðvelda leitina.

- Farðu í Actions (aðgerðir) og smelltu á hnappinn Cancel reservation (hætta við frátekt) (rauð ruslafata).
Þú getur einnig valið mörg linsuígræði til að hætta við í einu lagi með því að nota verkfærið Select (velja).

- Smelltu á „Yes“ (já) til að staðfesta á þú viljir hætta við.
Ath: Ef þú vilt ekki hætta við frátektina smellir þú á „No“ (nei).

Linsuígræðið sem hætt var við er fjarlægð af Reservations List (frátektarlista). Þú getur hins vegar skoðað frátektir sem hætt hefur verið við með því að smella á hnappinn Filters (síur), smella á „Show Canceled“ („sýna hætt við“) og smella á „Apply“ („virkja“) fyrir þessar síur. Allar fyrri frátektir fyrir sjúklinginn eru einnig aðgengilegar á síðunni Upplýsingar um sjúkling, undir RESERVATIONS (FRÁTEKIÐ).
Hætta við frátekt á linsuígræði á síðunni Reservations Details (upplýs. um frátekt)
- Farðu á síðuna Reservation Details (upplýs. um frátekt) og smelltu á hnappinn Cancel (hætta við).

- Smelltu á „Yes“ (já) til að staðfesta á þú viljir hætta við.
Ath: Ef þú vilt ekki hætta við frátektina smellir þú á „No“ (nei).

Linsuígræðið í frátektinni er merkt sem „Canceled“ („hætt við“) á síðunni Reservation Details (upplýs. um frátekt). Allar fyrri frátektir fyrir sjúklinginn eru aðgengilegar á síðunni Upplýsingar um sjúkling, undir RESERVATIONS (FRÁTEKIÐ).
Hvernig á að bæta linsuígræðum við í innkaupakörfuna
Ath: Verkflæðið Add to Cart (bæta í körfu) er aðeins í" boði fyrir milliliðalausa viðskiptavini og dreifingaraðila.
Eftir að þú hefur valið og vistað linsuígræði af réttri gerð á skjánum fyrir val á linsuígræði færðu aðgang að Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá) og getur valið linsuígræði til að Add to Cart (bæta í körfu), Reserve (taka frá) eða Manufacture (framleiða).
Ef þú ert tilbúin(n) til að panta linsuígræði til kaups getur þú bætt linsuígræðum í innkaupakörfuna:
- Smelltu á hnappinn Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá). Þú getur skoðað niðurstöður úr leit í birgðum fyrir hvort augað sem er, eitt auga í senn (ef við á).

- Staðfestu eða veldu aðra lengd fyrir linsuígræði. Til að breyta lengd valins linsuígræðis skaltu smella á hnappinn fyrir fellivalmyndina Select Different Length (velja mismunandi lengdir) og velja þá lengd sem óskað er.
Ath: Ráðlögð lengd samkvæmt notkunarleiðbeiningum fyrir valda linsuígræðið er valin sjálfkrafa en þú getur breytt því vali. Ef önnur lengd er valin fyrir valda linsuígræðið birtist nýtt sett ígræða með nýju útreiknuðu styrktargildunum og upplýsingum um árangurinn sem vænta má af aðgerðinni.

- Veldu Quantity (fjöldi).

Vinsamlegast athugið að tiltækt magn er breytilegt eftir stillingum viðskiptavina og fjölda linsuígræða með sömu linsuforskriftum sem eru tiltækar á lager.
- Smelltu á hnappinn Add to Cart (bæta í körfu) hjá linsuígræðinu sem þú vilt.

- Þegar þú hefur valið öll linsuígræði sem þú vilt í innkaupakörfuna skaltu smella á hnappinn Done (lokið).
Ath: Ef þú þarft að fjarlægja linsuígræði úr valinu þínu, smelltu á Cancel (hætta við) hnappinn á linsuígræðinu sem er In Cart (í körfu).

- Fylgdu sömu leiðbeiningum þegar linsuígræði er bætt í körfu fyrir hitt augað.
Með því að smella á Done (lokið) er linsuígræðið sett í körfuna og útreikningi læst fyrir það aðgerðarauga.

Þegar útreikningi hefur verið læst er ekki hægt að gera frekari breytingar á útreikningi linsuígræðisins. Þrátt fyrir að útreikningurinn sé læstur geturðu samt skoðað skjáinn Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá) með því að smella á hnappinn View Inventory (sjá birgðaskrá).
Linsuígræðin sem þú bætir við í körfuna fara sjálfkrafa í hana. Nánari upplýsingar um hvernig á að opna innkaupakörfuna er að finna í Hvernig á að opna innkaupakörfuna. Nánari upplýsingar um hvernig á að ljúka kaupum er að finna í Hvernig á að ljúka kaupum á linsuígræðum.
Ath: Linsuígræði í innkaupakörfunni, fyrir utan framleidd linsuígræði, eru sjálfkrafa frátekin. Þegar linsuígræði er fjarlægt úr innkaupakörfunni er linsuígræðið áfram á frátektarlistanum og hægt er að bæta því aftur í körfuna eða hætta við pöntunina.
Hvernig á að framleiða linsuígræði
Eftir að þú hefur valið og vistað linsuígræði af réttri gerð á skjánum fyrir val á linsuígræði færðu aðgang að Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá) og getur valið linsuígræði til að Manufacture (framleiða), Add to Cart (bæta í körfu) eða Reserve (taka frá). Í uppflettingu í linsubirgðum gæti viðbótaraðgerð verið í boði í Manufacture Lens (framleiða linsu) hnappinum. Þessi hnappur birtist á flipanum „In Transit“ („í flutningi“) þegar færri en tvö linsuígræði eru í birgðum sem passa við valið Sphere (kúpt) og Cylinder (sívalningur), og þar sem Axis (ás) er innan vikmarka skurðlæknisins fyrir ásinn.
Til að framleiða linsuígræði:
- Smelltu á hnappinn Inventory Lookup (fletta upp í birgðaskrá).

- Staðfestu eða veldu aðra lengd fyrir linsuígræði. Til að breyta lengd valins linsuígræðis skaltu smella á hnappinn fyrir fellivalmyndina Select Different Length (velja mismunandi lengdir) og velja þá lengd sem óskað er.

Til að láta framleiða viðeigandi linsuígræði skaltu smella Manufacture Lens (framleiða linsu).

Staðfestu að linsan sem skráð er sé sú linsa sem þú vilt framleiða.
Ath: Ás sem er 180 er hið sama og ás sem er 0, og ekki er víst að MTO linsuígræði passi alveg við ás en verða þó innan vikmarka skurðlæknis.

- Veldu þann fjölda linsuígræða sem þú vilt framleiða með því að smella á hnappinn fyrir fellivalmyndina.

- Smelltu á hnappinn Manufacture Lens (framleiða linsu) til að bæta ígræðinu í innkaupakörfuna.
Ath: Ef þú vilt hætta við val á linsuígræðum fyrir framleiðslu skaltu smella á hnappinn Cancel (hætta við) til að fara aftur í upphaflega skjáinn Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá).

Með því að smella á Manufacture Lens (framleiða linsu) er linsuígræðið sem á að framleiða sett í innkaupakörfuna (ef við á) og útreikningi læst fyrir það aðgerðarauga. Þegar útreikningi hefur verið læst er ekki hægt að gera frekari breytingar á útreikningi linsuígræðisins. Þrátt fyrir að útreikningurinn sé læstur geturðu samt skoðað skjáinn Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá) með því að smella á hnappinn View Inventory (sjá birgðaskrá).
Ath: Fyrir skurðlækna sem panta í gegnum dreifingaraðila eru linsuígræði sem á að framleiða sett inn sem frátekin linsuígræði. Til að forpanta, sjáið Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila: Hvernig á að forpanta.
Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila: Hvernig á að forpanta
Þegar þú vilt taka frá linsuígræði fyrir forpöntun getur þú forpantað linsuígræðin á flipanum Reservation (frátekt) eða síðunni Reservation Details (upplýs. um frátekt).
Forpanta linsuígræði á flipanum Reservations (frátekið)
- Finndu réttu frátektina á Reservations List (frátektalisti). Þú getur notað leitarreitinn og síuhnappinn til að auðvelda leitina.

- Undir Actions (aðgerðir), smelltu á Pre-Order (forpanta) hnappinn til að leggja inn forpöntun hjá dreifingaraðilanum þínum. Þú getur einnig valið mörg linsuígræði til að forpanta í einu lagi með því að nota verkfærið Select (velja).

Forpantanir eru sendar til þíns dreifingaraðila sem afgreiðir þær. Ef forpöntuð linsuígræði eru ekki pöntuð af dreifingaraðila þínum fyrir fyrningardagsetningu verður sjálfkrafa hætt við forpöntunina.
Forpanta linsuígræði á síðunni Reservations Details (upplýs. um frátekt)
- Staðfestu að linsuígræðið sem er skráð sé rétta linsuígræðið í frátektinni sem þú vilt forpanta.

- Smelltu á hnappinn Pre-Order (forpanta) til að leggja inn forpöntun hjá dreifingaraðilanum þínum.

Forpantanir eru sendar til þíns dreifingaraðila sem afgreiðir þær. Ef forpöntuð linsuígræði eru ekki pöntuð af dreifingaraðila þínum fyrir fyrningardagsetningu verður sjálfkrafa hætt við forpöntunina.
Dreifingaraðilar: Hvernig á að bæta forpöntuðum linsuígræðum í innkaupakörfuna
Þegar skurðlæknar hafa lagt inn forpantanir á linsuígræðum verða þær pantanir aðgengilegar á flipanum Reservations (frátekið). Athugaðu að ef forpöntuð linsuígræði eru ekki pöntuð fyrir fyrningardagsetningu verður sjálfkrafa hætt við forpantanirnar. Til að bæta forpöntuðu linsuígræðunum í innkaupakörfuna til kaups:
- Smelltu á flipann Reservations (frátekið).

- Undir Actions (aðgerðir) skaltu smella á hnappinn Add to Cart (bæta í körfu) (blá mynd af innkaupakörfu). Þú getur einnig valið mörg linsuígræði til að bæta í einu lagi í körfuna með því að nota verkfærið Select (velja).

Forpöntuðu linsuígræðin sem þú bætir við í körfuna fara sjálfkrafa í hana. Nánari upplýsingar um hvernig á að opna innkaupakörfuna er að finna í Hvernig á að opna innkaupakörfuna. Nánari upplýsingar um hvernig á að ljúka kaupum er að finna í Hvernig á að ljúka kaupum á linsuígræðum.
Önnur leið til að bæta stökum, forpöntuðum linsuígræðum í innkaupakörfuna
Þú getur einnig bætt stökum, forpöntuðum linsuígræðum í körfuna í gegnum síðuna Reservation Details (upplýs. um frátekt). Til að setja stök, forpöntuð linsuígræði í innkaupakörfuna til kaups:
- Finndu linsuígræðið á Reservations List (frátektalisti) og smelltu á Reservation Number (númer frátektar).

- Staðfestu að linsuígræðið í frátektinni sé rétt forpantað linsuígræði.

- Smelltu á hnappinn Add to Cart (bæta í körfu).

Forpantaða linsuígræðið sem þú bætir við í körfuna fara sjálfkrafa í hana. Nánari upplýsingar um hvernig á að opna innkaupakörfuna er að finna í Hvernig á að opna innkaupakörfuna. Nánari upplýsingar um hvernig á að ljúka kaupum er að finna í Hvernig á að ljúka kaupum á linsuígræðum.
Hvernig á að prenta birgðalistann
Á skjánum Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá) getur þú prentað út afrit af lista yfir tiltæk linsuígræði í birgðaskránni. Til að prenta birgðalistann:
- Smelltu á hnappinn Print Inventory (prenta birgðir).

- Smelltu á prentaratáknið til að hefja prentun eða smelltu á niðurhalshnappinn til að vista PDF á staðarneti þínu eða innra neti heilsugæslustöðvarinnar.

Ath: Hafðu í huga að birgðastaða getur breyst hvenær sem er. Til að fá aðgang að nýjustu birgðaupplýsingunum skaltu skoða skjáinn Lens Inventory Lookup (uppfl. í linsubirgðaskrá) í rauntíma á Stella. Þar að auki er mismunur á ávísunarupplýsingum, lengd og tegundarnúmeri frátekna eða pantaða linsuígræðisins og valda linsuígræðisins rauðmerktur.