Raða og leita að sjúklingum
Sjálfgefið er að Patient Activity (virkni sjúklings) sé flokkuð eftir nýjustu virkni efst. Hægt er að raða listanum í hækkandi eða lækkandi röð með því að smella á textann eða samsvarandi ör fyrir eftirfarandi flokka:
- Activity Date (dagsetning virkni)
- Patient ID (auðkenni sjúklings)
- Surgeon (skurðlæknir)
Til að leita að ákveðnum sjúklingi smellir þú á leitarreitinn og notar breytur eins og Name (nafn) (ef tiltækt), Order number (pöntunarnúmer), Lens number (númer linsuígræðis) o.s.frv. Á síðunni birtist sá sjúklingur sem passar við breytuna sem var notuð.
Þú getur einnig síað eftir tímabili til að birta á síðunni með því að smella á dagsetningareitinn og velja viðeigandi dagsetningar.

Hægt er að opna síður með ítarupplýsingum á flipanum Patients (sjúklingar)
Flipinn Patients (sjúklingar) inniheldur textatengla sem hægt er að smella á til að skoða ítarupplýsingar um sjúkling, IOD/SID eða ítarupplýsingar um pöntun/frátekt.

Hnappar
1. + Add new patient (bæta við n. sjúk.): nýr sjúklingur er stofnaður í þessari skjámynd
2. Prenta: búa til skýrslu um útreikning/pöntun
3. IOD/SID: kallar fram skjámynd með sprettiglugga fyrir IOD/SID. Á þeirri skjámynd er hægt að búa til IOD/SID.
4. Ör til að skoða allt: stækka hlutann þar sem hægt er að skoða allar upplýsingar um sjúklinga með mörg linsuígræði eða pöntunarupplýsingar
5. Filters (síur): sía sjúklingalistann út frá skurðlækni (ef notandi er skráður inn sem viðskiptavinur með marga skurðlækna), nafni stofnanda, stöðu linsuígræðis og/eða stöðu sjúklings
6. Export (fl. út): Excel-skýrsla um virkni sjúklings búin til
7. Checkout (ljúka kaupum) (ef við á): opnar núverandi innkaupakörfu
8. Help (Hjálp): veitir aðgang að Help Guide (leiðbeiningunum) sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar
9. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
10. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi
11. Síðunúmer: fletta í gegnum mismunandi síður sjúklingavirkni með því að smella á númer síðunnar eða örvarhnappana
