Raða og leita að frátektum

Sjálfgefið er að Reservations list (frátektalisti) sé flokkaður eftir nýjustu virkni efst. Hægt er að raða listanum í hækkandi eða lækkandi röð með því að smella á textann eða samsvarandi ör fyrir eftirfarandi flokka:

  • Reserved Date (dagsetning frátektar)
  • Reservation Number (númer frátektar)
  • Patient ID (auðkenni sjúklings)
  • Status (staða)

Til að leita að ákveðinni frátekt smellir þú á leitarreitinn og notar breytuna Reservation Number (númer frátektar). Á síðunni birtist pöntun sem passar við breytuna sem var notuð.

alt_text

Aðgangur að síðum með ítarupplýsingum

Flipinn Reservations (frátektir) inniheldur textatengla sem hægt er að smella á til að skoða ítarlegri upplýsingar um Reservation Details (upplýs. um frátekt), Patient Details (upplýsingar um sjúkling), Order Details (pöntunaruppl.) (ef við á) og Surgeon Details (upplýsingar um skurðlækni).

alt_text

Hnappar – Milliliðalaus viðskiptavinur og dreifingaraðili

1. Select (velja): mörg frátekin linsuígræði valin í einu til að bæta í körfuna eða hætta við að taka þau frá
2. IOD/SID: kallar fram skjámynd með sprettiglugga fyrir IOD/SID. Á þeirri skjámynd er hægt að búa til IOD/SID.
3. Add to Cart (bæta í körfu): frátekin linsuígræði sett í innkaupakörfuna
4. Remove from cart (fjarlægja úr körfu) (ef við á): frátekin linsuígræði tekin úr innkaupakörfunni
5. Cancel reservation (hætta við frátekt): hætt við að taka frá linsuígræði
6. Filters (síur): frátektir síaðar eftir skurðlækni (ef notandi er skráður inn á reikning viðskiptavinar með marga skurðlækna), stofnanda og/eða frátektarstöðu
7. Export (fl. út): Excel-skýrsla með frátektalistanum búin til
8. Checkout (ljúka kaupum): opnar núverandi innkaupakörfu
9. Help (Hjálp): veitir aðgang að Help Guide (leiðbeiningunum) sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar
10. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
11. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi
12. Síðunúmer: fletta í gegnum mismunandi síður frátekta með því að smella á númer síðunnar eða örvahnappana

alt_text

Hnappar – Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila

1. Select (velja): mörg frátekin linsuígræði valin í einu til að forpanta eða hætta við að taka þau frá
2. IOD/SID: kallar fram skjámynd með sprettiglugga fyrir IOD/SID. Á þeirri skjámynd er hægt að búa til IOD/SID.
3. Pre-Order (forpanta): setja frátekið linsuígræði í forpöntun
4. Cancel reservation (hætta við frátekt): hætt við að taka frá linsuígræði
5. Filters (síur): frátektir síaðar eftir skurðlækni (ef notandi er skráður inn á reikning viðskiptavinar með marga skurðlækna), stofnanda og/eða frátektarstöðu
6. Export (fl. út): Excel-skýrsla með frátektalistanum búin til
7. Help (Hjálp): veitir aðgang að Help Guide (leiðbeiningunum) sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar
8. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
9. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi
10. Síðunúmer: fletta í gegnum mismunandi síður frátekta með því að smella á númer síðunnar eða örvahnappana

alt_text

Stöðuvísar

Milliliðalaus viðskiptavinur:

  • Reserved (not in cart) (frátekin, ekki í körfu): Það tókst að taka vöruna frá. Linsuígræðið verður áfram tekið frá í tiltekinn tíma, allt eftir gildandi samkomulagi á þínu svæði.
  • Reserved (in cart) (frátekin, í körfu): Frátekna linsuígræðið er komið í innkaupakörfu og hægt er að ganga frá pöntun.
  • Ordered (pöntuð): Frátekið linsuígræði hefur verið pantað.
  • Expired (útrunnið): Frátekin er runnin út.
  • Canceled (hætt við): Hætt var við frátekt

Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila:

  • Reserved (frátekin): Það tókst að taka vöruna frá. Linsuígræðið verður áfram tekið frá í tiltekinn tíma, allt eftir gildandi samkomulagi á þínu svæði.
  • Pre-Ordered (forpantað): frátekið linsuígræði hefur verið forpantað.
  • Expired (útrunnið): Frátekin er runnin út.
  • Canceled (hætt við): Hætt var við frátekt

Dreifingaraðili:

  • Reserved (not in cart) (frátekin, ekki í körfu): Það tókst að taka vöruna frá. Linsuígræðið verður áfram tekið frá í tiltekinn tíma, allt eftir gildandi samkomulagi á þínu svæði.
  • Pre-Ordered (not in cart) (forpantað (ekki í körfu)): Linsuígræðið er forpantað en er ekki í körfunni eða linsuígræði hefur verið fjarlægt úr innkaupakörfunni.
  • Pre-Ordered (in cart) (forpantað (í körfu)): Forpantaða linsuígræðið er í körfunni eða dreifingaraðili bætti frátekt við körfuna.
  • Ordered (pöntuð): Frátekið linsuígræði hefur verið pantað.
  • Expired (útrunnið): Frátekin er runnin út.
  • Canceled (hætt við): Hætt var við frátekt

Athugasemd um frátekið linsuígræði

Athugaðu að munurinn á ávísunarupplýsingum, lengd og tegundarnúmeri frátekna linsuígræðisins og valda linsuígræðisins er rauðmerktur. Fyrir sjónskekkjulinsur er munur á kúlugildi, sívalningsgildi og öxulgildi linsuígræðisins valins linsuígræðis og frátekna linsuígræðisins litakóðaður. Fyrir bæði kúpt linsuígræði og sjónskekkjulinsuígræði er munur á lengd valins linsuígræðis og frátekins linsuígræðis einnig litakóðaður.