Raða og leita að skurðlæknum
Sjálfgefið er að Surgeon list (skurðlæknalisti) sé flokkaður eftir nýjustu virkni efst. Hægt er að raða listanum í hækkandi eða lækkandi röð með því að smella á textann eða samsvarandi ör fyrir eftirfarandi flokka:
- Activity Date (dagsetning virkni)
- Surgeon Name (nafn skurðl.)
Til að leita að ákveðnum skurðlækni smellir þú á leitarreitinn og notar breyturnar Name (nafn), Surgeon ID (kt. skurðl.) eða Location (staðs). Á síðunni birtist pöntun sem passar við breytuna sem var notuð.

Aðgangur að síðum með ítarupplýsingum
Flipinn Surgeons (skurðlæknar) inniheldur textatengla sem hægt er að smella á til að skoða ítarlegri upplýsingar á flipanum Surgeon Details (upplýsingar um skurðlækni).

Hnappar
1. + Add new patient (bæta við n. sjúk.): nýr sjúklingur er stofnaður í þessari skjámynd
2. Checkout (ljúka kaupum) (ef við á): opnar núverandi innkaupakörfu
3. Help (hjálp): veitir aðgang að leiðbeiningunum sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar.
4. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
5. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi
6. Síðunúmer: fletta í gegnum mismunandi síður skurðlækna með því að smella á númer síðunnar eða örvahnappana
