Hnappar
1. Til baka (innskotsmerki sem bendir til vinstri): fara aftur í flipann Patients (sjúklingar)
2. Edit (breyta): breyta upplýsingum um sjúkling
3. + Add pre-op data (bæta for.aðg.g.): búa til nýtt sett af foraðgerðargögnum fyrir sjúklinginn
4. Copy this pre-op data to a new set (afrita forpöntunargögn í nýtt sett): afrita foraðgerðargögn í nýtt sett

Hlutinn Lens / Surgery Info (uppl. um linsu/skurð.)
Aðgerðir í boði:
- Til að auðvelda þér að fylgjast með upplýsingum um skurðaðgerð þíns sjúklings getur þú fært inn aðgerðardagsetningu sjúklingsins og raðnúmer linsuígræðisins sem er grætt í auga hans í reitunum.
- Hér eru skráð öll linsuígræði sem eru pöntuð eða frátekin fyrir sjúklinginn, fyrir hvort aðgerðarauga (ef við á). Til að opna síðuna Order Details (pöntunaruppl.) eða Reservation Details (upplýs. um frátekt) smellir þú á númer pöntunar eða frátektar.
Ath: Munurinn á ávísunarupplýsingum, lengd og tegundarnúmeri frátekna eða pantaða linsuígræðisins og valda linsuígræðisins er rauðmerktur.

Hlutinn Reservations (frátekið)
Aðgerðir í boði:
- Á listanum eru öll linsuígræði sem eru frátekin fyrir sjúklinginn (ef við á). Til að opna síðuna Reservation Details (upplýs. um frátekt) smellir þú á númer frátektar eða upplýsingahnappinn.
- Til að búa til IOD eða SID skaltu smella á IOD- eða SID-hnappinn til að opna IOD-/SID-sprettigluggann.
Ath: Munurinn á ávísunarupplýsingum, lengd og tegundarnúmeri frátekna linsuígræðisins og valda linsuígræðisins er rauðmerktur.

Hlutinn Orders (pantanir
Aðgerðir í boði:
- Á listanum eru allar pantanir þínar á linsuígræðum fyrir sjúkling (ef við á). Opnaðu síðuna Order Details (pöntunaruppl.) með því að smella á pöntunarnúmerið.
- Til að búa til IOD eða SID skaltu smella á IOD- eða SID-hnappinn til að opna IOD-/SID-sprettigluggann.
Ath: Munurinn á ávísunarupplýsingum, lengd og tegundarnúmeri pantaða linsuígræðisins og valda linsuígræðisins er rauðmerktur.

Svæðið Pre-Op Data / Calculations (foraðgerðargögn / útreikningar)
Á svæðinu PRE-OP DATA / CALCULATIONS (FORAÐGERÐARGÖGN/ÚTREIKNINGAR) eru öll gögn um undirbúning aðgerðar fyrir sjúklinginn. Vistaðir útreikningar með lás gefa til kynna að þeim hafi verið úthlutað linsuígræði.
Aðgerðir í boði:
- Smelltu á tengilinn í dagsetningunni eða Pre-Op Saved (foraðgerð vistuð) til að fá aðgang að vistuðum foraðgerðargögnum.
- Til að afrita foraðgerðargögn sem tengjast foraðgerðargögnum sem þegar hafa verið vistuð skal smella á hnappinn Copy this pre-op data to a new set (afrita forpöntunargögn í nýtt sett).
- Til að búa til nýtt sett af foraðgerðargögnum í reiknivélinni skaltu smella á hnappinn + Add pre-op data (bæta for.aðg.g.).
Ath: Foraðgerðargögn/útreikningar merktir með rauðu „OCOS“ við hlið þeirra benda til þess að þessi útreikningur hafi verið fluttur inn úr OCOS. Þessi útreikningar eru læstir en hægt er að afrita þá í nýtt sett.
