Hvernig á að prenta skýrslu

Þegar foraðgerðargögn hafa verið vistuð skal reikna út styrk linsuígræðis og panta/taka frá linsuígræði. Þú getur prentað út skýrslu um útreikning/pöntun með samantekt á öllum tiltækum upplýsingum um undirbúning aðgerðar, útreikninga og linsuígræði.

Til að prenta skýrslu:

  1. Smelltu á hnappinn Print Report (prenta skýrslu) á yfirlitsstikunni á útreikningaskjánum eða á prentaratáknið undir Calculations (útreikningar) á flipanum Patients (sjúklingar).

Ath: Hnappurinn Print Report (prenta skýrslu) birtist ekki fyrr en þú hefur vistað foraðgerðargögn í reiknivélinni. Hnappurinn Print Report (prenta skýrslu) býr til skýrslu um Calculation/Order (útreikning/pöntun) í nýjum glugga.

Þegar opnað er í gegnum útreikningaskjáinn:

alt_text

  1. Sæktu eða prentaðu PDF-skýrsluna um Calculation/Order (útreikning/pöntun) með því að smella á hnappinn sækja eða prenta .

Þú getur prentað út pappírseintak af skýrslunni eða hlaðið niður PDF-skjalinu og vistað það á þinni tölvu eða á sameiginlegu drifi á læknastofunni þinni.

alt_text

Skýrsla um útreikning/pöntun

Skýrslan um Calculation/Order (útreikning/pöntun) sýnir yfirlit um öll tiltæk foraðgerðargögn fyrir sjúkling, valið linsuígræði samkvæmt útreikningum og pöntuð/frátekin linsuígræði samkvæmt útreikningunum. Upplýsingarnar í hlutanum Lenses (linsur) sýna líka hvort framkvæma þarf lithimnuskurð (peripheral iridotomy, PI) fyrir aðgerð.

alt_text