Kafli 1: Kynning á Stella™
Velkomin(n) í Stella™ frá STAAR Surgical™. Þessar gagnvirku leiðbeiningar veita yfirsýn yfir hvernig á að nota Stella til að auðvelda útreikninga og pöntun á kúptum linsuígræðum (þ.m.t. Visian ICL, ef það er í boði í þínu landi) og sjónskekkjulinsuígræðum frá EVO.
Stella færir þér:
- Aðgang allan sólarhringinn að útreikningstóli STAAR ICL
- Auðvelt ferli fyrir pöntun á ICL
- Tafarlausa yfirsýn yfir linsubirgðir og pöntun í rauntíma
- Ráðlagðir ICL styrkir og lengdir á grundvelli upplýsingar sjúklingsins þíns (sveigjanleiki til að velja linsuígræði fyrir sjúklinginn þinn)
- skýringarmynd af ígræslustefnu (Implantation Orientation Diagram, IOD) eða skýringarmynd af kúptu ígræði (Spherical Implantation Diagram, SID) í boði til að aðstoða þig við undirbúning skurðaðgerðar
Hafðu í huga að reiknivélin í Stella hefur verið endurbætt til að bæta notendaupplifun en reikniritið sem reiknivélin notar er óbreytt og mun skila sömu niðurstöðum og OCOS.
Innskráning
Sem skurðlæknir þarft þú lækningaleyfi til að fá aðgang að þessum hugbúnaði. Tæknimenn eða starfsfólk heilsugæslustöðva geta einnig fengið heimild til innskráningar í þennan hugbúnað að því tilskildu að það tengist skurðlækni með lækningaleyfi.
Innskráningarupplýsingar eru sendar úr þjónustuveri STAAR Surgical (customerservice.ag@staar.com) eftir að þú hefur horft á nauðsynleg þjálfunarmyndbönd í fræðslumiðstöðinni STAAR Education Center.

Gleymt aðgangsorð
Ef þú gleymir aðgangsorðinu:
- Smelltu á Need help with password? (þarftu aðstoð við lykilorð?) á innskráningarskjánum til að endurstilla aðgangsorðið
- Sláðu inn netfangið þitt
- Smelltu á hnappinn Send password reset (senda tengil til að endurstilla aðgangsorð)
Þú færð sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig á að endurstilla aðgangsorðið þitt. Skoðaðu pósthólfið þitt og ef enginn tölvupóstur birtist þar skaltu kíkja í ruslpósthólfið

Notendahlutverk
Eiginleikarnir sem boðið er upp á í Stella eru mismunandi, allt eftir því hvort notandahlutverk þitt er milliliðalaus viðskiptavinur, skurðlæknir sem pantar í gegnum dreifingaraðila eða dreifingaraðili. Hafðu þetta í huga, þar sem sumir hlutar leiðbeininganna eiga hugsanlega ekki við um þitt hlutverk.
Persónuverndartilkynning og samþykki fyrir markaðssetningu
Þegar þú skráir þig inn á reikninginn þinn í fyrsta sinn birtast skilaboðin Persónuverndartilkynning og Samþykki fyrir markaðssetningu. Nauðsynlegt er að hlíta persónuverndartilkynningunni og samþykki fyrir markaðssetningu til að fá aðgang að Stella. Þegar þú hefur lesið og samþykkt skilaboðin geturðu haldið áfram á síðuna. Þessi skilaboð birtast aðeins einu sinni.
Skilaboð, persónuverndartilkynning:

Skilaboð, samþykki fyrir markaðssetningu:

Val á lækni eða reikningi viðskiptavinar
Fyrir aðganga með marga lækna eða viðskiptavini er hægt að velja hvaða skurðlækni eða viðskiptavin skal nota í valmyndinni Select (velja). Til að velja aðgang til að skoða:
- Smelltu á heiti skurðlæknis eða viðskiptavinar af listanum
- Smelltu á View Dashboard (sjá mælaborð)
Þú getur valið að gera þetta val að sjálfvöldum aðgangi með því að smella á gátreitinn Make this my default selection (gera að sjálfgefnu vali mínu). Þú getur hvenær sem er breytt valinu með því að taka hakmerkið af reitnum fyrir Make this my default selection (gera að sjálfgefnu vali mínu) á reikningnum eða með því að velja annan lækni eða viðskiptavin af listanum.

Ef þú hefur skráð þig inn með völdum aðgangi er einnig auðvelt að breyta þessu vali með því að nota hnappinn change customer or surgeon account (skipta um aðgang viðskiptavinar eða skurðlæknis). Til að skipta á fljótlegan hátt milli reikninga af yfirlits stikunni:
- Smelltu á hnappinn til að change Customer or Surgeon account (skipta um aðgang viðskiptavinar eða skurðlæknis)
- Smelltu á heiti skurðlæknis eða viðskiptavinar af listanum
- Smelltu á View Dashboard (sjá mælaborð)

Samþykki
Skilaboðin um Acknowledgement (viðurkenning) eru áskilinn fyrirvari fyrir Stella ICL skipulagskerfið. Lestu skilaboðin vandlega og smelltu því næst á Acknowledge and Continue (staðfesta og halda áfram). Þessi skilaboð þarf að samþykkja í hvert sinn sem notandi skráir sig inn til að fá aðgang að vefsvæðinu.

Hvernig á að breyta tungumáli í Stella
Tungumálið sem notað er í Stella er sjálfgefið sama tungumál og þú velur að nota í kerfinu okkar. Ef þú vilt breyta tungumálastillingum þínum skaltu hafa samband við þjónustuverið með því að senda tölvupóst á customerservice.ag@staar.com.
Yfirlitsstika fyrir Stella
Yfirlitsstikan efst á síðunni veitir þér aðgang að mismunandi eiginleikum Stella. Tiltækir hnappar á yfirlitsstikunni eru:
Milliliðalausir viðskiptavinir
1. Lógó fyrir Stella: Beinir notandanum á mælaborðið
2. Dashboard (Mælaborð): Sýnir frátektartilkynningar valins skurðlæknis/viðskiptavinar, tilkynningar um pantanir og mikilvæg skilaboð til notenda
3. Patients (Sjúklingar): Inniheldur lista yfir virkni virkra sjúklinga valins skurðlæknis/viðskiptavinar
4. Orders (Pantanir): Inniheldur lista yfir pantanir valins skurðlæknis/viðskiptavinar
5. Reservations (Frátekið): Inniheldur lista yfir frátektir valins skurðlæknis/viðskiptavinar
6. Surgeons (Skurðlæknar): Inniheldur lista yfir skurðlækna sem tilheyra þínum reikningi
7. Inventory (Birgðaskrá) (ef við á): Inniheldur upplýsingar um birgðaskrá fyrir kúpt linsuígræði og sjónskekkjulinsuígræði
8. Checkout (ljúka kaupum): opnar núverandi innkaupakörfu
9. Help (hjálp): veitir aðgang að leiðbeiningunum sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar.
10. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
11. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi

Skurðlæknar sem panta í gegnum dreifingaraðila
1. Lógó fyrir Stella: Beinir notandanum á mælaborðið
2. Dashboard (Mælaborð): Sýnir frátektartilkynningar valins skurðlæknis/viðskiptavinar, tilkynningar um pantanir og mikilvæg skilaboð til notenda
3. Patients (Sjúklingar): Inniheldur lista yfir virkni virkra sjúklinga valins skurðlæknis/viðskiptavinar
4. Orders (Pantanir): Inniheldur lista yfir pantanir valins skurðlæknis/viðskiptavinar
5. Reservations (Frátekið): Inniheldur lista yfir frátektir og forpantanir
6. Surgeons (Skurðlæknar): Inniheldur lista yfir skurðlækna sem tilheyra þínum reikningi
7. Help (Hjálp): veitir aðgang að Help Guide (leiðbeiningunum) sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar
8. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
9. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi

Dreifingaraðilar
1. Lógó fyrir Stella: Beinir notandanum á mælaborðið
2. Dashboard (Mælaborð): Sýnir frátektartilkynningar valins skurðlæknis/viðskiptavinar, tilkynningar um pantanir og mikilvæg skilaboð til notenda
3. Patients (Sjúklingar): Inniheldur lista yfir virkni virkra sjúklinga valins skurðlæknis/viðskiptavinar
4. Orders (Pantanir): Inniheldur lista yfir pantanir sem þú hefur lagt inn fyrir skurðlækna sem tengjast þér
5. Reservations (Frátekið): Inniheldur lista yfir forpantanir sem skurðlæknar sem tengjast þér hafa gert og þínar frátektir
6. Surgeons (Skurðlæknar): Inniheldur lista yfir skurðlækna sem tengjast þér
7. Checkout (ljúka kaupum): opnar núverandi innkaupakörfu
8. Help (Hjálp): veitir aðgang að Help Guide (leiðbeiningunum) sem leiðbeina um notkun Stella ICL skipulagskerfisins og reiknivélarinnar
9. Change customer or surgeon (Skipta um viðskiptavin eða skurðlækni): velja að skoða annan reikning viðskiptavinar eða annan skurðlækni
10. Sign out (útskrá): skráir þig út af núverandi reikningi

Mikilvæg ábending um hnappinn til að endurnýja
Þegar þú vafrar um Stella skaltu ekki nota hnappinn til að endurnýja í vafranum, heldur fylgja ævinlega leiðbeiningunum í hugbúnaðinum til að halda áfram. Óþarfa endurnýjun vafra getur hreinsað óvistuð gögn eða truflað verkflæði reiknivélarinnar.
Samskiptaupplýsingar fyrir þjónustuver
Netfang: customerservice.ag@staar.com
Símanúmer: +41 32 332 8888
Notkunarleiðbeiningar
Farðu á vefsíðu STAAR Surgical eDFU á edfu.staar.com (ekki í boði í öllum löndum) eða skoðaðu notkunarleiðbeiningarnar sem fylgja vörunni.