Hvernig á að opna innkaupakörfuna

Þegar búið er að bæta linsuígræðum eða framleiddum linsuígræðum í körfuna er hægt að fara í innkaupakörfuna til að skoða öll linsuígræðin. Til að skoða innkaupakörfuna þína smellir þú á græna hnappinn Checkout (ljúka kaupum) sem er efst til hægri á yfirlitsstikunni.

alt_text

Á skjánum Shopping Cart (karfa) geturðu skoðað öll linsuígræði og fylgihluti (ef við á) í pöntuninni. Linsuígræði sem eru sett í körfuna geta verið í innkaupakörfunni í allt að 21 dag. Sé ekki gengið frá kaupum á linsuígræðunum innan 21 daga eru þau fjarlægð sjálfkrafa úr innkaupakörfunni.

Ath: Linsuígræði í innkaupakörfunni, fyrir utan framleidd linsuígræði, eru sjálfkrafa frátekin. Þegar linsuígræði er fjarlægt úr innkaupakörfunni er linsuígræðið áfram á frátektarlistanum og hægt er að bæta því aftur í körfuna eða hætta við frátekina síðar meir. alt_text

Hnappar

1. Add lens (ný linsa) *ef við á: setja fleiri linsuígræði í körfuna fyrir sama útreikning
2. Remove (fjarl.): fjarlægja linsuígræðið úr innkaupakörfunni
3. Continue shopping (versla meira): halda áfram að versla fyrir aðra sjúklinga í sömu innkaupum
4. Checkout (ljúka kaupum): fara í greiðsluferli til að ganga frá pöntun
5. IOD/SID: kallar fram skjámynd með sprettiglugga fyrir IOD/SID. Á þeirri skjámynd er hægt að búa til IOD/SID.

alt_text